Heil og sæl.
Vefverslun mal. er komin í loftið. Við munum bjóða uppá nokkrar tegundir af garni og munu þær tínast inn smám saman. Aðal garntegundin er fínband/ 80% merino og 20% nylon. Það garn er til í tugum lita en hægt er að biðja um þá liti í öðrum garngrunnum sé þess óskað. Á næstu vikum koma fleiri garntegundir inn á síðuna og verður þar eitthvað af nýjum litum í bland. Auk þess mun ég setja inn aðrar vörur sem tengjast prjónaskap svo sem verkefnatöskur, prjónamerki o.fl.
Sigrún María